Undankvöld Músíktilrauna 2010, 15.-18.mars og skráningin!
Nú hefur verið staðfest að undankvöld Músíktilrauna 2010 verða haldin dagana 15.-18.mars í Íslensku Óperunni. Dagsetning ásamt staðsetningu úrslitakvölds verður tilkynnt síðar.
Skráning í Músíktilraunir opnar 15.feb. og lýkur 1.mars. Allar nánari upplýsingar um skráninguna munu birtast á heimasíðunni
www.musiktilraunir.is þegar nær dregur. Eingöngu verður um rafræna skráningu að ræða, þ.e. einungis verður hægt að seækja um þátttöku í gegnum þá heimasíðu.