Síðasta Föstudagsfiðrildið í sumar!
Föstudaginn 9.júlí fer síðasta Föstudagsfiðrildið fram í miðborginni kl. 12-14
DAGSKRÁ
Svalirnar á mótum Ingólfsstrætis og Laugavegs:
-Hljómsveitin Silfurberg leikur norræn þjóðlög af hjartans list.
Á ferð og flugi um miðbæinn:
-Götuleikhús Hins Hússins ferðast um bæinn.
-F3 verða með fána víðsvegar um miðborgina.
Með leik í hjarta
leggðu af stað
í leit að fánum
sem blakta þar
Hvar?
Fáðu þér kort í Hinu Húsinu og leitin er hafin!
Á ferð um Austurstræti og
Bankastræti:
-Danshópurinn Móanóra heldur kaffiboð.
Við Stjórnarráðið:
-Dansandi drengir flytja frumsaminn og litríkan stigadans.
Austurstræti og Lækjartorg:
- Tónlistarhóparnir María&Matti og Mora taka höndum saman og flytja
skemmtilegan tónlistargjörning.
- Myndlistarhópurinn Garún lætur á sér kræla. Ef til vill er von á
fljúgandi furðuhlut frá fjarlægri siðmenningu.
Gottskálk þrumdi þetta af sér.. sýna teiknimyndasögurnar Urðarboli og
Grafarpúkarnir.
-Augnablik stendur fyrir ljósmyndasýningu um sundstund.
-Uppistandshópurinn Upp mín sál! ásamt Uppidanshópnum Hnoð, setja á svið
feluleikhús.
Austurvöllur:
-Fimbulfambi skemmtir með ýmsum ljósmyndum og tónum í takt.
-Ljóðahópurinn Ljóðverk stendur fyrir Ljóðarjóðri á Austurvelli þar sem
skáld lesa úr eigin verkum. Meðal þeirra sem koma fram eru Garðar
Baldvinsson, Benóný Ægisson, Jón Örn Loðmfjörð og Aðalsteinn Ásberg.
Ingólfstorg:
- Danshópurinn Uppsteyt flytur spunaverk byggt á goðsögninni um
örlaganornirnar þrjár, Urði, Verðandi og Skuld.
Við Hitt Húsið:
-Útvarpshópurinn Homo Superior býður upp á upplestur um Glastonbury
hátíðina og kynnir væntanlegan útvarpsþátt, Útvarp Veganesti.
Ekki missa af Listhópum Hins Hússins í bænum á föstudaginn!