Götuhátíð í dag

Gtuht_-_veggspjald_2010Jafningjafræðslan og VÍS bjóða landsmönnum að fagna með sér sumrinu á götuhátíð sem að fram fer næstkomandi föstudag frá kl. 14 á Austurvelli. Hátíðin verður öll með glæsilegasta móti og þar mun fjöldi tónlistarmanna og listamanna stíga á stokk. 

Fram koma: Fönksveinar, Kristmundur Axel, Sing for me Sandra, Original Melody, Ramses, Jón Jónsson, GÁVA, The assassin of a beautiful brunette, Friðrik Dór og Raggi Bjarna. Tónlistarmennirnir eru á öllum aldri og til gamans má geta að það munar 61 ári á yngsta og elsta flytjanda á hátíðinni. Þar fyrir utan verður grínarinn Þorsteinn Guðmundsson með gamanmál, hressir parkour strákar sýna listir sýnar ásamt götulistamanninum Wally og flóamarkaður Hins Hússins verður í fullum gangi en þar er hægt að kaupa sér notuð föt ásamt öðru glingri.

 

           
Þá verða einnig gefnar pylsur,  Fanta lemon, candy-floss og smokkar frá ONE á meðan byrgðir endast. Gestir og gangandi geta einnig unnið sér inn margskonar vinninga frá fjölmörgum fyrirtækjum í happadrætti Jafningjafræðslunnar þar sem miðinn kostar heilar 0 kr. Dregið verður á milli tónlistaratriða. Semsagt mikið að gerast niður á Austurvelli næsta föstudag kl. 14:00 og Jafningjafræðslan er búin að panta bongóblíðu.
 
Hér eru nokkrar myndir frá Götuhátíðinni í fyrra:
 
 
_lg_gtuht_jafningjafrslunnar_2009_032
_lg_gtuht_jafningjafrslunnar_2009_204
_lg_gtuht_jafningjafrslunnar_2009_151
_lg_gtuht_jafningjafrslunnar_2009_143
 
Það eru fleiri myndir inn í myndasafninu jafningjafræðslunnar á heimasíðunni www.jafningjafraedslan.is
 
Sjáumst á Austurvelli á föstudaginn í sumarskapi :)