Vængjasláttur - lokahátíð Listhópa Hins Hússins

Lokahátíð Listhópa Hins Hússins verður haldin fimmtudaginn 15. júlí í Ráðhúsi Reykjavíkur kl. 20:00. Hóparnir munu koma fram og sýna brot af afrakstri sumarsins, fagna sól og flögra á brott.
Dagskráin er eftirfarandi:

Mora
Tríóið Moru skipa þær Bergrún Snæbjörnsdóttir, Ragnhildur Gunnarsdóttir og Sigrún Jónsdóttir.  Í sumar hafa stelpurnar blásið lífi í götulíf Reykjavíkurborgar. Þær flytja Dallas Theme, útsetning: Bergrún Snæbjörnsdóttir, Slow for Julia e. Boris Kovac, útsetning: Sigrún Jónsdóttir og Dh'umd eftir Bergrúnu Snæbjörnsdóttur.

Dansandi drengir & Móanóra
Dansandi drengir eru þeir Karl Friðrik Hjaltason, Kolbeinn Ingi Björnsson, Sveinn Breki Hróbjartsson og Viktor Már Leifsson. Markmið hópsins hefur verið að
vekja athygli á dansinum  í menningarlífi Reykjvíkurborgar og sýna að hann geti höfðað til allra.
Danstríóið Móanóra er skipað þeim Hildigunni Önnu Hall, Hildi Margréti Jóhannsdóttur og Snæfríði Ingvarsdóttur. Með fjölbreyttum uppákomum í miðbænum í sumar, hefur hópurinn viljað opna heim listdansins fyrir gangandi vegfarendum.
Saman sýna hóparnir dans sem er byggður á verkinu The Groove To Nobody´s Business. Verkið er samið af Camille A. Brown fyrir bandaríska dansflokkinn Alvin Ailey.

Ljóðverk
Mennirnir á bak við Ljóðverk eru þeir Snorri Rafn Hallson og Már Másson Maack. Fyrirbærið Ljóðverk var tilraun til að auka áhuga fólks á íslenskum skáldskap, opna augu gangandi vegfarenda fyrir borgarlandi Reykjavíkur og ögra eftirtektarleysi einstaklingsins í erilsömu nútímasamfélagi.
María & Matti

Dúettinn skipa þau María Arnardóttir píanóleikari og Matthías Ingiberg Sigurðsson klarinettleikari. Í sumar hafa þau einbeitt sér að léttri sumartónlist eins og fyrir gesti og gangandi í miðbænum og víðar. Þau flytja  IV – Forlana og  V – Fughetta úr "Five Bagatelles" e. Gerald Finzi.

Hnoð
Sviðslistahópurinn Hnoð  samanstendur af Ásrúnu Magnúsdóttur, Berglindi Pétursdóttur og Rósu Ómarsdóttur og sérhæfir hópurinn sig í íslenskum dansi. Þær flytja verkið Óður til íslensks listdans.

F3
F3 samanstendur af þremur ungum myndlistarmönnum, Örnu Óttarsdóttur, Baldvini Einarssyni og Hrafnhildi Helgadóttur. Í sumar hafa þau skapað fána fyrir fólk og hafa þeir verið dregnir að húni víða um miðbæinn. Þau hafa leitast við að nýta ónotaðar fánastangir auk þess sem þau hafa endurnýtt efni í fánana.

Fimbulfambi
Dúettinn Fimbulfambi er samansettur af Áskeli Harðarsyni og Þórði Páli Pálssyni. Notagildi "fornmuna" hefur verið útgangspunktur í listsköpun Fimbulfamba og deila félagarnir áhuga á fornum raftækjum. Tónlistin er aðal listform Fimbulfamba en þeir hafa jafnframt kryddað tónleikana  með ljósmyndasýningum. Fimbulfambi gerir ambient raftónlist sem sækir töluvert mikið í hljóðlist.

Dansandi drengir
Flytja frumsaminn stigadans.

HLÉ!

Götuleikhúsið
Í sumar hefur Götuleikhús Hins Hússins glætt götur og torg borgarinnar lífi með óvæntum uppákomum sem gleðja, vekja til umhugsunar og hrista upp í áhorfendum. Götuleikhúsið hefur skapað sér sérstöðu með metnaðarfullum og myndrænum uppákomum sem breyta sýn vegfarenda á umhverfi, líf og list.
Leikstjóri: Steinunn Knútsdóttir. Útlit og búningar: Una Stígsdóttir
Götuleikarar: Andrea E. Vilhjálmsdóttir, Anna Kolfinna Kuran, Bjarki G. Guðfinnsson, Gríma Kristjánsdóttir, Hafdís Helga Helgadóttir, Inga Rán Reynisdóttir, Ingibjörg Antonsdóttir, Jón Reginbaldur Ívarsson, Ragnheiður E. Þuríðardóttir, Sólveig Eva Magnúsdóttir, Steiney Skúladóttir, Tinna Sverrisdóttir, Þuríður Jóhannsdóttir, Matthías Enok Hannesso.

Garún
Þau Sigurður Þórir Ámundason, Freydís Kristófersdóttir og Arnljótur Sigurðsson skipa myndlistarhópinn Garún. Þau hafa lífgað upp á miðborgina í sumar með verkum hópsins og hafa þau m.a. komið fyrir blómaskúlptúrum, kynjaverurum og krítarverkum. Þau sýna brot af verkum hópsins.

Upp mín sál!
Gunnar Jónsson,  Saga Garðarsdóttir, Ugla Egilsdóttir,  Þórdís Nadia Óskarsdóttir skipa  uppistandshópinn Upp mín sál! Í sumar hafa þau skrifað og flutt efni fyrir sundlaugagesti, vinnustaðahópa, heldri borgara og marga fleiri.  Þau bjóða upp á uppistandið Sálmar í pósti.
Gottskálk þrumdi þetta af sér...
Hópinn skipar Magnús Ingvar Ágústsson. Gottskálk hefur í sumar komið íslenskum þjóðsögum á myndrænt form. Uppáhalds sögur Gottskálks urðu fyrir valinu og þær síðan þróaðar yfir í  teiknimyndasögur.

Homo Superior
Hópinn skipa þær Selma Reynisdóttir, Sunna Axelsdóttir og Katrín Helga Andrésdóttir. Þær hafa unnið að gerð útvarpsþáttar í sumar en hann mun fara í loftið í ágúst á Rás 2 FM 90,1.
Þátturinn ber nafnið Veganesti og fjallar um tónlistarhátíðir, uppruna þeirra, sögu, hljómsveitir og flest allt sem við kemur tónlistarhátíðum.

Uppsteyt
Auður Ragnarsdóttir, Katrín Þóra Sigurbjörnsdóttir og Unnur Ósk Stefánsdóttir skipa danshópinn Uppsteyt. Þær hafa sótt innblástur til frumkvöðla nútímadansins og skapað ólík verk í sumar. Þær flytja verkið Vídd sem samið var sérstaklega fyrir lokahátíðina.

Augnablik
Markmið verkefnisins hefur verið að  mynda fólk í miðbæ Reykjavíkur og fanga augnablikið og sumarstemninguna. Fjölbreyttar og litríkar myndirnar hanga uppi í gluggum verslana, víða á Laugaveginum.  Halla Einarsdóttir er ljósmyndari Augnbliks.

Silfurberg
Hljómsveitina skipa þau Lilja Björk Runólfsdóttir, Baldur Tryggvason, Sigmar Þór Matthíasson, Ingi Bjarni Skúlason, Þorvaldur Halldórsson og Daníel Geir Sigurðsson. Í sumar hefur hljómsveitin flutt norræn þjóðlög í jözzuðum stíl fyrir gesti og gangandi ásamt því að hafa spilað út um allar trissur. Þau flytja  Kristallen den fina (sænkst þjóðlag) og Ormurinn langi (færeyskt þjóðlag).