Bagg er bögg
Jafningjafræðsla
Hins hússins, Knattspyrnusamband Íslands og Lýðheilsustöð hleyptu af
stað átaksverkefninu „Bagg er bögg“ á blaðamannafundi sem að fram fór í
höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli í dag. Átakinu er ætlað að sporna
við aukinni munntóbaksnotkun hjá
ungu fólki, þar sem sérstök áhersla er lögð á unga knattspyrnuiðkendur.
Andlit átaksins eru Alfreð Finnbogason landsliðsmaður í knattspyrnu og
Sara Björk Gunnarsdóttir landsliðskona í knattspyrnu ásamt
jafningjafræðurunum Rúnari Guðbjartssyni og Sigríði Ólafsdóttur, en þau
spila einnig knattspyrnu með íslenskum félagsliðum samhliða störfum
sínum hjá Jafningjafræðslunni.
Jafningjafræðslan,
KSÍ og Lýðheilsustöð frumsýndu á fundinum veggspjöld og bæklinga sem
voru hönnuð sérstaklega fyrir átakið. Þessu myndefni verður dreift til
íþróttafélaga, skóla og félagsmiðstöðva og Jafningjafræðslan mun einnig halda fræðslufundi um munntóbak fyrir knattspyrnuiðkendur í 2. og 3. flokki í vetur.
Jón
Heiðar Gunnarsson framkvæmdastjóri Jafningjafræðslunnar, Viðar Jensson
verkefnastjóri á Lýðheilsustöð og Þórir Hákonarson framkvæmdastjóri KSÍ
ræddu almennt um munntóbak og samstarfið á fundinum. Viðar benti
fundargestum á að reykingar og áfengisnotkun hefur snarminnkað hjá
íslenskum ungmennum síðastliðin ár en þrátt fyrir það sé
munntóbaksnotkun einhverra hluta vegna í
mikilli sókn hjá ungum drengjum. Jón Heiðar benti á að það eru
gríðarlega miklar ranghugmyndir í gangi um munntóbak hjá ungu fólki og
að íþróttir og munntóbak eigi aldrei samleið. Þá
sagði Þórir að það væri mikil ánægja með verkefnið af þeirra hálfu og
að það væri í raun siðferðisleg skylda KSÍ að sporna við
munntóbaksnotkun hjá íþróttafólki.