Ljósmyndasýning Fimbulfamba í Gallerí Tukt
Föstudaginn 23. júlí verður opnuð ljósmyndasýning í Gallerí Tukt, Hinu Húsinu, kl. 15-17. Ljósmyndasýningin mun standa frá 23/07 til 7/08 2010 og eru allir velkomnir.
Þeir Áskell Harðarson og Þórður Páll Pálsson eru ungir listamenn sem standa fyrir yfirlitssýningu ljósmynda sem þeir hafa unnið í sumar. Verkefni þeirra var valið í Listhópa Hins Hússins þar sem þeir störfuðu sem dúettinn Fimbulfambi.
Notagildi fornmuna er útgangspunktur í listsköpun Fimbulfamba og er nostalgía í hávegum höfð. Þeir nota ýmis raftæki við sköpun sína eins og gamlar filmu-ljósmyndavélar, myndvarpa fyrir slides myndir og fleira.
Hægt verður að kaupa ljósmyndirnar á sýningunni.