Ungt fólk með ungana sína

Ungar mæður/feður með ungana sína og ungar ófrískar konur

Nú hefst starfið okkar í Hinu Húsinu með ungum foreldrum og við viljum bæta í hópinn  ungum ófrískum konum.

Við hittumst reglulega á miðvikudögum kl.14-16 á 3ju hæð, í Hinu Húsinu. Aðgengi með kerrur og vagna er mjög gott.
ATH. Aðgengi fyrir vagn og kerru er inn um portið, aftan við Hitt Húsið.

Annan hvern miðvikudag verðum við með spennandi fyrirlestra og kynningar. Ef þú veist af einhverju sniðugu sem þú vilt fá að vita meira um eða ert með spennandi hugmynd, láttu okkur endilega vita. Því fleiri hugmyndir því betra. Allt er þetta að kostnaðarlausu.

Frekari upplýsingar veitir
Magnea Sigurðardóttir S. 695-5109

Ungt fólk með ungana sína

Á morgun miðvikudaginn 24.feb milli kl 14 og 16 kemur Sigríður Sverrisdóttir í heimsókn með ungbarnaskyndihjálparbrúðuna, hún kennir okkur réttu handtökin í neyð og við fáum síðan að prófa okkur áfram. Þetta er eitthvað sem er nauðsynlegt fyrir alla að vita og gott að rifja upp á 2ja ára fresti.

[ MEIRA ]