Atvinnumál

 
Í atvinnuleit

Atvinnuráðgjafar Hins Hússins leitast við að hjálpa ungu fólki (17-25 ára) í atvinnuleit.
Hægt er að leita til okkar varðandi ráðgjöf við atvinnuleit og öllu sem henni tengist.


Við bjóðum ýmis ráð í atvinnuleitinni:
 
- Þú getur komið hingað í Hitt Húsið, Pósthússtræti 3-5, notfært þér ókeypis internet, skoðað atvinnuauglýsingar í dagblöðum og fengið góð ráð í atvinnuleitinni.
 
- Þú getur sent okkur tölvupóst og beðið um skjöl með góðum ráðum í atvinnuleitinni, yfirlit yfir ráðningarmiðlanir á höfuðborgarsvæðinu, yfirlit yfir fyrirtæki sem sniðugt er að sækja um hjá og ráð um hvernig á að gera ferilskrá.
 
- Þú getur sótt ýmis skjöl hérna á síðunni sem tengjast atvinnuleit.
 
- Þú getur fengið upplýsingar um vinnu erlendis.
 

Auk þess erum við alltaf tilbúin að svara fyrirspurnum, einnig er hægt að hafa samband í síma 411-5500 eða senda póst á atvinnumal@hitthusid.is
 
Að ýmsu er að hyggja þegar leitað er að atvinnu. Nauðsynlegt er t.d. að hafa greinargóða ferilskrá sem lýsir á sem skýrastan hátt þeim atriðum sem nauðsynlegt er að komi fram við atvinnuumsókn. Ferilskrána þarf að eiga á tölvutæku formi svo hægt sé að senda hana á netinu til atvinnurekenda og vinnumiðlana.
 
Við bjóðum upp á ýmis ráð varðandi atvinnuleitina sjálfa sem og ráð sem gott er að hafa í huga þegar maður er boðaður í atvinnuviðtal.
 
Hér á síðunni eru einnig upplýsingar um hefðbundið ráðningarferli og um ráðningasamninga og atvinnutilboð.

SKRÁÐU ÞIG Á PÓSTLISTA

Rafbrot