Sérsveitin
Meginmarkmið Sérsveitarinnar er að styðja hinn fatlaða til sjálfstæðis, sem einstakling og í samskiptum við aðra. Í starfi Sérsveitarinnar er lögð áhersla á þrjá meginþætti; efling sjálfstrausts, efling sjálfstæðis og eflingar samkenndar með öðrum.
Í Sérsveitinni er unnið eftir tveimur grundvallarreglum. Annarsvegar að byggja á þeirri færni sem einstaklingurinn býr yfir í stað þess að horfa á það sem einstaklingurinn getur ekki, áhersla er lögð á hæfni, ekki vanhæfni. Hins vegar að veita einstaklingnum stuðning þegar hann þarf á því að halda og leyfa hverjum og einum að prófa sig áfram. Þannig öðlast fólk færni sem nýtist þeim síðar við að vinna hlutina án stuðnings.