Klár í kreppu?

         
        Fylgist með hér á heimásíðunni því næstu námskeið verða auglýst hér á síðunni.         
ALMENNT UM NÁMSKEIÐIÐ:
Klár í kreppu er ókeypis og óháð fjármálanámskeið á mannamáli fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25 ára.  Námskeiðið er samstarfsverkefni á milli Hins Hússins, Neytendasamtakanna og Reykjavíkurborgar. Námskeiðið er bæði fyrir þá sem að eru illa staddir í fjármálum og fyrir þá sem vilja fræðast um fjármál almennt í forvarnarskyni. Að námskeiði loknu eiga þátttakendur að vera færir um að stjórna eigin fjármálaum á ábyrgan hátt.  
Aðgangur á námskeiðið er eins og fyrr sagði ókeypis og allir þátttakendur fá að auki USB lykil sér til eignar en hann hefur að geyma persónulegt  bókhaldsforrit og fjármálafræðsluna Fjárinn.
   
SAGAN OG HUGMYNDAFRÆÐIN
Hitt Húsið reynir ávallt að vera með puttann á púlsinum hverju sinni og starfsfólk Hins Hússins reynir að aðlaga starfsemina að sem mestum mætti að breyttum aðstæðum í samfélaginu. Jón Heiðar Gunnarsson verkefnastjóri hjá Hinu Húsinu hafði lengi gengið um með hugmynd um óháða fjármálafræðslu í maganum eftir að hafa horft upp á bankana fara offari í fjármálafræðslu fyrir ungt fólk og fljótlega eftir að fjármálakreppan skall á fór Hitt Húsið að finna fyrir aukinni þörf á slíkri fræðslu. Fréttir bárust um að fólk á aldrinum 16-20 ára skuldaði tæpa  6 milljarða króna í  ársbyrjun ársins 2008, en það gerir um 246.000 kr. í hreinar skuldir á hvern einasta einstakling á þessu aldursbili. Þessar tölur þurfa samt ekki að koma neinum á óvart í ljósi þess að þessi aldursflokkur er oft á tíðum berskjaldaður fyrir áreiti banka og ýmissa gylliboða líkt og tölvukaupum, bílalánum og ýmsum neyslulánum án þess að búa að grunnþekkingu á helstu hugtökum fjármálaheimsins. 
Eftir að við fórum að stað í rannsóknarvinnu þá varð okkur ljóst að það eru sérstaklega takmörkuð úrræði í boði fyrir þennan aldurshóp sem hefur alist upp við stanslaust góðæri allt sitt líf og kann því lítið að spara. Við sendum út spurningarlista um fjármál einstaklinga í nokkra bekki á framhaldsskólastigi og eftir að við sáum niðurstöðurnar þá varð okkur endanlega ljóst að þörfin væri virkilega mikil fyrir slíka fræðslu í íslensku samfélagi og við ákváðum að það væri mikilvægt að ýta þessu verkefni úr vör sem fyrst.
Við leituðum til Ragnhildar Guðjónsdóttur en hún er varaformaður Neytendasamtakanna, framhaldskólakennari og annar höfundur fjármálafræðslunnar Fjárinn. Fyrir þá sem ekki vita þá er Fjárinn fjármálafræðsla sem er sérhönnuð fyrir ungt fólk. Í Fjáranum eru öll helstu hugtök fjármálaheimsins útskýrð og fjallað er um öll helstu málefni sem að koma upp í lífi venjulegs ungmennis s.s. bílalán, húsnæðiskaup, neyslulán, ráðningarferli, yfirdátt o.sv.frv. Að auki hefur kennsluefnið að geyma persónulegt bókhaldsforrit sem að hver og einn getur nýtt sér til að ná betri stjórn yfir sínum eigin fjármálum. Ragnhildur var öll að vilja gerð og var mjög jákvæð fyrir samstarfi við okkur í þessu verkefni. Með hennar hjálp og með hjálp frá Neytendasamtökunum og Reykjavíkurborg þá tókst okkur að setja námskeiðið saman á mettíma og náðum þannig að bregðast hratt og örugglega við breyttum samfélagsaðstæðum. 
Verkefnið fór  formlega af stað þann 6.11. 2008 en þá hengdum við upp auglýsingarspjöld fyrir verkefnið og opnuðum fyrir skráningu. Í upphafi vonuðumst við eftir að fá um 40 manns til að mæta á námskeiðið en það ætlaði hinsvegar allt um koll að keyra strax á fyrsta degi skráningar en þá skráðu yfir 100 manns sig á námskeiðið á örfáum klukkutímum. Við bættum því strax við öðru námskeiði til að koma til móts við þessa miklu ásókn en neyddumst til að loka fyrir skráningu eftir fyrsta daginn.
Ljóst er að sérstaða verkefnisins höfðaði vel til ungs fólks. Mesta sérstaðan felst í því að hér er verið að bjóða ungmennum upp á ókeypis og óháða fjármálafræðslu en hingað til hefur slík ráðgjöf vanalega verið veitt af bönkum eða öðrum fjármálafyrirtækjum sem hafa beinan ávinning af því að ráðleggja fólki að notast við sína þjónustu.  Þessi mikla aðsókn gefur einnig út sterk skilaboð til menntakerfisins sem hingað til hefur ekki boðið upp á mikla fjármálafræðslu sem hluta af almennu námi þrátt fyrir að allir þurfa að notfæra sér slíka þekkingu í sínu hversdagslega lífi. Það er sorgleg staðreynd að í íslensku samfélagi á 21. öldinni er til margt ungt fólk sem hefur litla sem enga þekkingu eigin fjármálum og þetta námskeið er okkar tilraun til að sporna við slíkri þróun.
 
Mörg nágrannabæjarfélög settu sig í samband við Hitt Húsið fljótlega eftir að fyrsta Klár í kreppu námskeiðið fór af stað og lýstu yfir áhuga á verkefninu. Í framhaldinu hafa verið haldin Klár í kreppu námskeið á hinum ýmsu stöðum á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Klár í kreppu námskeiðið er nú orðið að stóru verkefni sem nær að teygja anga sína um stóran hluta Íslands.
 
SJÓNVARPSFRÉTT UM NÁMSKEIÐIÐ:
 
MYNDIR FRÁ NÁMSKEIÐUNUM: