Hópar 2010

Eitt af fjölmörgum verkefnum Hins Hússins eru Listhópar Hins Hússins sem starfræktir eru yfir sumartímann ár hvert. Þá gefst ungu fólki á aldrinum 16-25 ára kostur á að sækja um og koma með hugmyndir að skapandi verkefnum. Valdir hafa verið 15 hópar sem fá 8 vikur til þess að vinna úr hugmyndum sínum og eru verkefnin afar fjölbreytt og skemmtileg. Listafólkið stundar margt hvert nám við Listaháskóla Íslands eða við aðra listaskóla á háskólastigi og má því segja að margir séu komnir vel á veg með að gerast fagfólk í listum. Suma hópa skipar yngra fólk sem er að feta sig áfram á listbrautinni og eru verkefni þeirra ekki síður hugmyndarík og áhugaverð.

Hver hópur er mjög metnaðarfullur og sköpunargleði og kraftur einkennir andann sem ríkir á vinnustöðum þeirra. Starf hópanna gefur okkur tilefni til að líta upp úr hversdagsleikanum í erli dagsins og njóta listsköpunar. Komdu með í listaleiðangur í Reykjavík í sumar og njóttu þín í miðborginni.

Gleðilegt listasumar!

MORA
MARIA & MATTI
DANSANDI DRENGIR
GARÚN
UPP MÍN SÁL!
FIMBULFAMBI
AUGNABLIK
MÓANÓRA
F3
SILFURBERG
GOTTSKÁLK ÞRUMDI ÞETTA AF SÉR...-ÍSLENSKAR ÞJÓÐSÖGUR
HNOÐ
ÚTVARP HOMO SUPERIOR
LJÓÐVERK
DANSHÓPURINN UPPSTEYT

4 vikna listhópar Hins Hússins

Hóparnir falla ekki undir hefðbundna lýsingu á listhópum Hins Hússins heldur starfa einungis í 4 vikur. Þrátt fyrir að hóparnir hafi ekki verið valdir sem Listhópar Hins Hússins þóttu verkefni þeirra engu að síður mjög áhugaverð. Hópunum var því veitt tækifæri til að þróa hugmyndir sínar frekar, kynnast verklagi listamanna og læra nokkur grunnhandtök sem þarft er að kunna við úrvinnslu hugmynda í listrænu umhverfi.

Eftirfarandi hópar voru valdir:

RITSVEINAR
MEÐ FULLT Í FANGI
VAGGA