Upp mín sál!
Upp mín sál! er hópur uppistandara sem hyggst skemmta borgarstarfsmönnum og gangandi vegfarendum í allt sumar. Uppistandararnir ætla að semja eigið efni og þau munu prófa sig áfram með annars konar grínmiðla, svo sem söng og lifandi sketsa. Þau koma til með að troða upp þrisvar í viku á vinnustöðum Reykjavíkur sem og á víðavangi. Hópurinn samanstendur af fjórum uppistöndurum sem bæði skrifa og flytja. Þau eru: Gunnar Jónsson, nemandi í ritlist við Háskóla Íslands, Saga Garðarsdóttir, leiklistarnemi við Listaháskóla Íslands, Ugla Egilsdóttir, nemi í fræði og framkvæmd við Listaháskóla Íslands og Þórdís Nadia Óskarsdóttir, kvikmyndafræðinemi við Háskóla Íslands. Hópurinn er opinn fyrir bókunum í gegnum netfangið ragnar.isleifur@gmail.com eða í síma 8990980/8208897. Einnig er hægt að fylgjast með uppákomum hópsins á www.facebook.com
Upp mín sál! is a comedy troupe that will entertain the people of Reykjavík city this summer. These comedians will write original material, experimenting with different mediums of comedy such as music, stand-up or live sketches. The troupe will perform three times a week, in workplaces in Reykjavík as well as out in the streets. The group consists of four comedians: Gunnar Jónsson, a student of creative writing at the University of Iceland, Saga Garðarsdóttir, an acting student at the Icelandic Academy of the Arts, Ugla Egilsdóttir, a student of Theory and Practice at the Icelandic Academy of the Arts and Þórdís Nadia Óskarsdóttir, a student of Film at the University of Iceland. To book the troupe, please contact ragnar.isleifur@gmail.com or call 899-0980/820-8897. You can also find them on www.facebook.com
TILBAKA/BACK