Fimbulfambi

Dúettinn Fimbulfambi er samansettur af Áskeli Harðarsyni og Þórði Páli Pálssyni. Þeir eru báðir nemar við Tónlistarskóla FÍH. Notagildi "fornmuna" er útgangspunktur í listsköpun Fimbulfamba og er nostalgía í hávegum höfð. Ýmis raftæki verða notuð við verkefnið, t.d. gamlar filmu-ljósmyndavélar, myndvarpar fyrir slides-myndir auk annars. Tónlistin er aðal listform hópsins en á tónleikum í sumar munu áhorfendur einnig fá að sjá ljósmyndasýningar og vídeóverk. Fimbulfambi gerir ambient raftónlist með skírskotun til hljóðlistar. Margt er á dagskrá sumarsins: mánaðarlegir tónleikar, ljósmyndasýningar, flutningur tónverks fyrir ýmis rafhljóðfæri og strengjakvartett, tónverk fyrir bjöllur Hallgrímskirkjuturns og hljóðinnsetningar í miðbænum. Áætlað er að taka upp eitt lag í hverri viku og gefa þau út í lok sumars á kasettu og á internetinu. Hægt er að fylgjast með tónleikadagsetningum og gangi mála hjá Fimbulfamba á www.facebook.com

Fimbulfambi is a duett formed by Áskell Harðarsson and Þórður Páll Pálsson. Both are students at FÍH School of Music. They share a great intrest in old Electronics  and have collected various things such as: old film-cameras, slides-image projector amongst other things. Music is their main artform but at concerts they will also have photo exhibitions and video art. Fimbulfambi plays ambient electronic music with refrences to minimalist music. On the agenda for this summer is for example: at least one concert in each month, photo exhibitions, live performance of a song for electronic instruments and a string quartet, music for the bells at the Hallgrímskirkja church and sound-insertions in the center of Reykjavík. Furthermore, Fimbulfambi will write one new song each week of the summer, and in the end of the summer release them on the internet and on kasettes. You can get more information about Fimbulfambi such as concert dates on www.facebook.com

TILBAKA/BACK