Augnablik
Markmið verkefnisins er að taka myndir af fólki í miðbæ Reykjavíkur og fanga augnablikið og sumarstemminguna. Fjölbreyttar og litríkar myndirnar verða svo hengdar upp í gluggum verslana og skapa þannig ákveðna stemmingu og auka spenningin þegar fólk gengur niður Laugarveginn. Í þessu litla samfélagi sem við búum í eru allar líkur á því að þú munir þekkja einhvern á þessum 80 myndum sem birtast í búðargluggunum eða jafnvel sjáir sjálfa(n) þig. Annars geturuðu farið á veraldarvefinn á www.augnabliksumarsins.blogspot.com en allar myndirnar verða settar þangað inn. Augnablik mun ná hinum sanna miðbæjar anda í gegnum sumarlinsuna. Að verkefninu stendur Halla Einarsdóttir en hún stundar nám við Myndlistarskólann í Reykjavík.
The aim of this project is to capture people in downtown Reykjavík and catch them in the moment of the summer. The diverse and colorful pictures will then be on display in windows of shops and create a certain atmosphere when people walk down Laugarvegur. In this small community that we live in it is likely that you will recognize some of the 80 individuals that appear in one or more of the shop windows, or even see yourself. Otherwise you can log on to www.augnabliksumarsins.blogspot.com where all pictures will be posted. Augnablik will reach the true spirit of downtown Reykjavík through the summer lens. This project is created by Halla Einarsdóttir who studies at The Reykjavík School of Visual Art.
TILBAKA/BACK