Móanóra
Danstríóið Móanóra er skipað þeim Hildigunni Önnu Hall, Hildi Margréti Jóhannsdóttur og Snæfríði Ingvarsdóttur. Allar eru þær nemendur við framhaldsdeild Listdansskóla Íslands. Með fjölbreyttum uppákomum í miðbænum vill hópurinn opna heim listdansins fyrir gangandi vegfarendum. Á sólríkum sumardögum er ætlunin að gleðja augu almennings og vekja athygli á því hve mikilvægt og skemmtilegt tjáningarform nútímadansinn er. Áhersla verður lögð á myndun forma og uppstillinga með tilliti til bygginga og annarra umhverfisþátta. Hægt er að finna Móanóru á www.facebook.com
The dance trio Móanóra consists of Hildigunnur Anna Hall, Hildur Margrét Jóhannsdóttir and Snæfríður Ingvarsdóttir. They are all students at the Icelandic Ballet School studying postgraduate studies. With a variety of events the aim is to draw attention to the art of dance for pedestrians in Reykjavík. On sunny summer days we intend to please the public and invoke interest in the importance of the entertainment of modern dance. They will emphasize form and structure with reference to architecture and other environmental factors. You can find Móanóra on www.facebook.com
TILBAKA/BACK