Útvarp Homo Superior

Sumarið er tíminn, eins og skáldið sagði. Tími sólgleraugna, frjókornaofnæmis, geitunga og síðast en ekki síst tími tónlistarhátíða. Í sumar mun Homo Superior koma í loftið útvarpsþættinum Skúrinn sem verður á fimmtudagskvöldum kl. 22:00 á Rás 2 FM 90,1. Í þættinum verður fjallað um tónlistarhátíðir; uppruna þeirra, sögu, hápunkta, áhugaverðar hljómsveitir og í raun flest allt sem viðkemur tónlistarhátíðum. Kæru landsmenn, þið standið frammi fyrir mikilvægri ákvörðun. Svo margar tónlistarhátíðir, hvert skal fara? Homo Superior ætlar að gera sitt besta til að annars vegar, lækna valkvíða við val á tónlistarhátíðum og hins vegar að næra ævintýraþrá hlustenda. Útvarp Homo Superior samanstendur af Selmu Reynisdóttur, Sunnu Axelsdóttur og Katrínu Helgu Andrésdóttur.

Radio Homo Superior
Summer is the time when sunglasses, pollen allergy and bees take over and above all; countless music festivals come to life. This summer, Radio Homo Superior will host the radioshow Skúrinn which will be broadcasted on Thursdays at 22:00 pm on Rás 2 FM 90,1 (Radio Channel 2). The radioshow will cover music festivals and talk about interesting bands, high points, history and the origins of the festivals. One might think „there are so many music festivals and so little time, what should I choose?" Do not fear, dear citizen. Radio Homo Superior will do it´s best to help you make the best decision possible when it comes to choosing a music festival. The group consists of Selma Reynisdóttir, Sunna Axelsdóttir and Katrín Helga Andrésdóttir.

TILBAKA/BACK