Upplýsingamiðstöð


Hitt Húsið er menningar- og upplýsingamiðstöð fyrir ungt fólk á aldrinum 16 til 25 ára.  Húsið stendur við Pósthússtræti 3 -5 í hjarta borgarinnar.  Þar voru áður gamla lögreglustöðin og pósthús.  Gengið er inn í Hitt Húsið á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis (rauða húsið á horninu). 

Í upplýsingamiðstöðina geta allir leitað og óskað eftir aðstoð eða góðum ráðum. Ungt fólk getur líka sent fyrirspurn í gegnum netið og setjum við okkur það markmið að svara innan viku. Ef svarið er vandfundið hjá okkur þá reynum við eftir bestu getu að komast að því hvar það er að finna. Í móttöku upplýsingamiðstöðvarinnar getur ungt fólk komið og fengið upplýsingar um allt og ekkert og spurt spurninga um hvað sem er. Við reynum að svara þeim eftir bestu getu. Senda fyrirspurn

Á heimasíðunni má einnig finna ýmsar upplýsingar sem við uppfærum eftir þörfum. Markmið okkar er að veita ungu fólki persónulega og faglega þjónustu og er efni heimasíðunnar ætlað til þess að koma fólki á sporið en nánari svör veita starfsmenn Upplýsingamiðstöðvarinnar. 

Meginhlutverk Upplýsingamiðstöðvar er þjónusta við gesti hússins, aðrar deildir og leigutaka sem þjónusta sama aldurshóp. Þema okkar ÍTR starfsmanna er samvinna. 
 
Upplýsingamiðstöðin hefur að leiðarljósi að gestum hússins, starfsmönnum og leigutökum, og öðrum samstarfsaðilum finnist gott að leita þangað með hugmyndir að verkefnum eða óskir um aðstoð eða samstarf. 
 
 

Frítt net!
Kaffið og blöðin

Flóamarkaður ungs fólks!

Þriðjudaginn 8. júní ætlum við í Hinu Húsinu að bjóða þér (16-25 ára meðan pláss leyfir) að koma hingað með gamalt dót og selja þér að kostnaðarlausu, hvort sem það eru gamlir cd/vinyl plötur, gamlar flíkur, myndavélar, græjur, hljóðfæri eða hvað sem þér dettur í hug. 

Þetta stendur yfir í einn dag frá klukkan 18-21. Við sköffum eins og ávalt húsnæði, sendum út fréttatilkynningar og höfum starfsfólk til aðstoða. Þetta er eins og flest allt á okkar vegum þáttakendum að kostnaðarlausu. Hægt er að selja, kaupa eða skiptast á vörum og Hitt Húsið tekur ekkert gjald af því. 

Ef ÞÚ hefur áhuga á að taka þátt hafðu þá samband sem fyrst með því að senda tölvupóst á hitthusid@hitthusid.is eða hringdu í síma 411-5500.
[ MEIRA ]