HH vefsjónvarp

HH er lifandi og skemmtilegur sjónvarpsþáttur fyrir ungt fólk framleiddur af Hinu Húsinu. Þátturinn er sýndur á sjónvarpsstöðinni ÍNN, heimasíðu Hins Hússins, monitorTV, youtube og facebook. Þátturinn er gerður af ungu fólki og er fyrir ungt fólk og er sá eini sinnar tegundar á Íslandi í dag. Facebook síða þáttarins er HÉR Það er hægt að horfa á alla þættina hér hægra megin á síðunni.

30.4.2009

HH Dagskráin

8. þáttur:
1. Tókum púlsinn á ungu fólki í Reykjavíkurráði  en þau mættu á fund með Borgarstjórn.
2. Spurðum ungt fólk í Kringlunni hvað það ætlaði að kjósa í kosningunum.
3. Formannaflippið flippaði með formönnum MA og MR í æsispennandi keppni í pönnukökubakstri.
 
7. þáttur:
Músiktilraunir 2009, baksviðs og fyrir framan svið :)
 
 
6. þáttur:
1. Fræddumst um ódýrustu stúdentshúfurnar á Íslandi.
2. Mötuneytisgagnrýnin fór í Kakóland í MR til að fá sér í svanginn.
3. Töluðum við tvo hressa stráka um verkefnið "sex and money".
 
 
5. þáttur:
1. Ræddum við talsmann "Food not bombs" á Íslandi en samtökin gefa fólki ókeypis
mat niður á Lækjatorgi.
2. Fræddumst um Útþrá en þar er hægt að kynna sér allt um nám og starf erlendis
.....fínt fyrir þá sem vilja flýja land :)
 
 
4. þáttur:
1. Tókum út klifursportið á Íslandi og Sindri fékk að henda sér í/á vegg.
2. Tókum púlsinn á þungarokk-senunni í kreppuástandinu.
3. Sendum starfslið Gettu Betur, Ásgeir Erlends og Evu Maríu, í lauflétta og æsispennandi spurningakeppni.

22.4.2009

...

3. þáttur:
1. Formannaflippið tók formenn MR og Versló í sjósund í Nauthólsvík.
2. Litum á strákana í Búdrýgindum sem eru að koma með "kombakk".
3. Sindri skellti sér á brimbretti um hávetur í ísköldum íslenskum sjó.
4. Tókum púlsinn á : Pínku Píkusögum
 
2. þáttur:
1. Mötuneytisgagnrýnin skellti sér í Kvennaskólann.
2. Hafsteinn video-listamaður var með sýningu í Gallerý Tukt.
3. Ræddum við Jenný frá Lýðheilsustöð um ofbeldi og horfðum
í því samhengi á brot úr dagvaktinni og síðan á endurgerð
á þessu sama myndbroti.
 
1. þáttur:
1. Formannaflipp þar sem formenn nemendafélaganna í MH og
Versló takast á í æsispennandi keppni í pylsuáti.
2. Rögnvaldur Skúli setur fram listasýningu um útrásarvíking og
stjórnmálamenn.
3. Litum við baksviðs á Versló-söngleikinn Stardust.

Fleiri fréttir